24. desember 2006 klukkan 04:12
Jæja nú fyrst er ég að komast í jólastuð. Konan er með jólamúsikina alveg í botni að strauja föt stráksins, rosa dugleg. Ég kann ekki að strauja þannig að ég losna við það.

hehehe
Ég hef séð það að ef maður gerir hlutina nógu illa heima fyrir þá losnar maður alveg við að gera þá, konan gerir þá bara fyrir mig.......nú verð ég laminn! Æji maður mætti nú vera duglegri að vinna húsverkin, get alveg viðurkennt það.
Við fjölskyldan fórum í Smáralindina í dag og ótrúlegt en satt þá meikaði ég það bara ágætlega, fullt af fólki og stress en ég virtist alveg þola það. Kannski er það eitthvað öðruvísi núna þegar maður fer með stráknum, ætli maður gleymi sér ekki að hugsa um hann en ekki skarkalann.
Fórum svo í mat til afa. Mamma eldaði skötu (ojbaralyktin) en við kjúklingarnir fengum saltfisk. Anna, Ingi, Hjördís, Palli, Maggi,Hjördís,Telma, Regína,Erna,Guðbjörg, Sigríður og Sunna voru þarna og var bara fjör á hól.
Á morgun, aðfangadag, förum við til mömmu í mat. Hvað ætli maður fái í jólagjöf

hmmm....Tómas Pálmar er allavegna orðinn spenntur, búinn að vera mjög góður í fríinu þó hann mætti nú alveg sofa aðeins lengur, frekar erfitt fyrir konuna að vakna svona snemma, því ég bara steinsef eins og sönnum húsbónda sæmir

Annars finnst mér svo skrýtið að hafa ekki ömmu Hjördísi með okkur um jólin, einkennilegt hvað þessi árstími kallar söknuðinn fram. Hún sagði reglulega við mig að þegar hún færi þá myndi hún fylgjast sérstaklega vel með mér og ef ég hegðaði mér ekki skikkanlega að þá fengi ég tvö bönk á hausinn, þrátt fyrir að ég hef ekki fengið nein höfuðhögg þá veit ég að hún er hjá okkur og fylgist með.
Þangað til næst,
Tommi